2017-09-14 19:18:20 CEST

2017-09-14 19:18:20 CEST


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í dag, fimmtudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 25 tilboð upp á 3.240 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 800 milljónir kr.

Í heild bárust 8 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 800 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,49% - 4,70%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320 milljónir á 4,58% flötum vöxtum.

Í heild bárust 14 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 2.120 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,50% - 4,70%.  Samþykkt voru tilboð að nafnverði 480 milljónir á 4,59% flötum vöxtum.

Í heild bárust 3 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 320 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 4,77% - 4,90%. Öllum tilboðum var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 20 september.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Ársælsson, fjármögnun Arion banka, eirikur.arsaelsson@arionbanki.is,
s: 444 7472