2012-05-15 09:58:15 CEST

2012-05-15 09:59:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HS Orka hf - Ársreikningur

Árshlutauppgjör HS Orku hf.


Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins
fyrir fyrsta ársfjórðung 2012. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við
alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum.
Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is 

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

· EBITDAer áfram öflug og er alls um 786 m.kr. á fyrsta ársfjórðungi 2012en var
764 m.kr. ásama tímabil 2011. 

· Eiginfjárhlutfall er mjög sterkt í lok mars 2012 eða um 47%. Á tímabilinu var
hlutafé aukið um 4.698 m.kr. og var hið nýja hlutafé greitt inn í lok febrúar
2012. 

· Reiknaðir fjármagnsliðir hafa afgerandi áhrif á afkomu tímabilsins sem er
nánast við núllið. Gengistap var 718 m.kr. en á móti kom hækkun afleiðna
(framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) um 462 m.kr. 

· Þrátt fyrir öfluga EBITDA lækka tekjur um 6% eða um 112 m.kr. og námu 1.841
m.kr. í lok ársfjórðungsins en voru 1.953 m.kr. á sama tímabili árið 2011. Að
sama skapi lækkar rekstrarkostnaður um 10% eða sem nemur 143 m.kr. milli
þessara tímabila Nokkrar ástæður eru fyrir þessari lækkun tekna, m.a. lækkun á
álverði, en stærst vegur hins vegar að samningur um sölu á 35 Mwe til Norðuráls
Grundartanga rann út 1. október 2011. Á móti því kemur að samningur við
Landsvirkjun um kaup á 8 MWe á ári rann út nú um síðustu áramót. Mismunurinn
(27 MWe) hefur síðan að mestu verið seldur á almennum markaði en þar er
nýtingartíminn talsvert lægri. Flutningskostnaður lækkar síðan þar sem ekki er
lengur greitt fyrir flutning þessara 35 MWe til Norðuráls en jafnvirði þess
kostnaðar var áður hluti teknanna. 

Frekari upplýsingarveitir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 860 5208.