2016-01-25 11:03:38 CET

2016-01-25 11:03:38 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun



Í 3. viku 2016 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.588.000 eigin
hluti fyrir kr. 18.198.360 eins og hér segir. 

Dagsetni   Tími      Keyptir    Viðskiptave  Kaupverð   Eigin hlutir Sjóvá eftir
   ng                 hlutir         rð                        viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
18.1.201  11:16:5    800.000       11,45     9.160.00         34.084.227        
   6         8                                  0                               
20.1.201  10:30:0    740.000       11,47     8.487.80         34.824.227        
   6         0                                  0                               
20.1.201  11:16:1     48.000       11,47      550.560         34.872.227        
   6         7                                                                  
 Samtals            1.588.000                18.198.3                           
                                                60                              
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. júlí 2015, sbr. og tilkynning til
Kauphallar dags. 7. júlí 2015. 

Sjóvá hefur nú keypt samtals 34.872.227 hluti í félaginu sem samsvarar 87,18%
af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 427.190.201. Sjóvá á nú samtals 2,19% af
heildarhlutafé félagsins sem er 1.592.520.994. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 40.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 500 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2016, en þó aldrei síðar en
26. mars 2016 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. 

Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða
í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.