|
|||
2008-05-14 11:14:31 CEST 2008-05-14 11:15:07 CEST REGULATED INFORMATION Glitnir banki hf. - FyrirtækjafréttirGlitnir lýkur velheppnaðri sérvarinni skuldabréfaútgáfu í NoregiGlitnir Bank ASA gefur út sérvarin skuldabréf að upphæð 109 milljarða íslenskra króna í Noregi Reykjavík, 14. maí 2008 - Glitnir Bank ASA í Noregi lauk í dag velheppnaðri útgáfu sérvarinna skuldabréfa að upphæð 7 milljarðar norskra króna (109 milljarðar íslenskra króna). Það er BN Boligkreditt AS, dótturfélag Glitnis, sem er útgefandi skuldabréfanna. Þar með er öll fjármögnun tryggð fyrir starfsemi Glitnis í Noregi fyrir árið 2008 og hluta af fjármögnun ársins 2009 og síðar. Útgáfan var seld til norskra fagfjárfesta. Skuldabréfin sem um ræðir eru með líftíma frá 1-7 ára á verðinu NIBOR +25-+55 punktum."Ég er mjög ánægður með að Glitnir Bank ASA hafi tryggt alla fjármögnun sína fyrir árið 2008 með sérvarinni skuldabréfaútgáfu", segir Morten Bjørnsen, framkvæmdastjóri Glitnis á Norðurlöndunum. "Ég er einnig ánægður með hagstætt verð á útgáfunni og hversu vel norskir fjárfestar tóku henni"."Viðtökur fjárfesta á skuldabréfaútgáfunni sýna skilning þeirra á undirliggjandi styrk Glitnis og trausti til starfsemi okkar í Noregi. Sérvarin skuldabréfaútgáfa er hagkvæm leið til að ná í fjármagn við núverandi markaðsaðstæður. Traust eignasafn okkar í Noregi gerir okkur kleift að fjármagna áfram starfsemi okkar með sérvörðum skuldarbréfum", segir Lárus Welding forstjóri Glitnis. Afkoma Glitnis var mjög góð á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, sem einkenndist af afar krefjandi markaðsaðstæðum. Þrátt fyrir umrótið var hagnaður bankans um 7,7 milljarðar, fyrir skatta og tekjur af kjarnastarfsemi um jukust 8,6% . Þá lækkaði kostnaður um 12% frá á milli ársfjórðunga. Þetta sýnir undirliggjandi styrk og sveigjanleika í rekstri bankans. Glitnir er með trausta lausafjárstöðu, um 8,7 milljarða evra í lausu fé, og endurgreiðsluþörf móðurfélags á árinu er 1,58 milljarður evra. Glitnir Bank ASA í Noregi sýndi einnig góða afkomu á fyrsta ársfjórðungi. Hagnaður fyrir skatta var 104 milljónir norskra króna, samanborið við 90 milljónir norskra króna á fjórða ársfjórðungi 2007. Arðsemi eigin fjár var 12,3% en var 10,9% á síðasta ársfjórðungi. Artic Securities og Pareto Securities í Ósló voru umsjónaraðilar útgáfunnar. Nánari upplýsingar veita: Ingvar H. Ragnarsson, framkvæmdastjóri Fjárstýringar, sími 440 4665, farsími 844 4665 og netfang: ingvar.ragnarsson@glitnir.is. Vala Pálsdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, farsími 844 4089 og netfang: vala.palsdottir@glitnir.is Már Másson, forstöðumaður kynningarmála, farsími: 844 4990 og netfang: mar.masson@glitnir.is |
|||
|