|
|||
2011-02-24 16:03:24 CET 2011-02-24 16:04:24 CET REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2010TM styrkir stöðu sína Helstu niðurstöður ársins 2010: Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2010 var 765 m.kr. samanborið við 237 m.kr. hagnað 2009. -- Heildartekjur TM árið 2010 voru 11,6 milljarðar króna en voru 12,8 milljarðar króna 2009. Heildargjöld 2010 voru 10,8 milljarðar króna en 12,5 milljarðar 2009 -- Eigin iðgjöld jukust um 8% og voru 10.170 m.kr. samanborið við 9.431 m.kr. á árinu 2009. -- Eigin tjónakostnaður lækkaði um 12% og var 7.794 m.kr. á árinu 2010 samanborið við 8.859 m.kr. 2009. -- Rekstrarkostnaður lækkaði um 2% og var 2.145 m.kr. á árinu 2010 samanborið við 2.192 m.kr. 2009. -- Eigið tjónshlutfall félagsins lækkaði úr 94% í 77% á milli ára. -- Samsett hlutfall félagsins lækkaði úr 114% í 95%. -- Fjárfestingatekjur félagsins voru jákvæðar sem nemur 1.363 m.kr. en voru 3.359 m.kr. á árinu 2009. -- Heildareignir TM voru 29.407 m.kr. þann 31. desember 2010. Eigið fé nam 8.803 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 30%. Sigurður Viðarsson, forstjóri TM: „Í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna voru vöxtur og afkoma TM á árinu 2010 mjög góð. Iðgjaldatekjur jukust á sama tíma og tjónakostnaður lækkaði umtalsvert. Afkoma af vátryggingastarfsemi var ein sú besta í sögu félagsins og er ánægjulegt að sjá markvissa úrbótavinnu á þessu sviði skila árangri. Aðstæður á fjármálamörkuðum voru hins vegar erfiðar og afkoma af fjármálastarfsemi var undir væntingum. Fjárhagsstaða TM er sem fyrr traust og hækkaði eiginfjárhlutfall á milli ára. Styrkur TM felst í góðu sambandi við viðskiptavini sína og reksturinn framundan býður uppá fjölmörg tækifæri”. Jákvæð þróun í vátryggingarekstri Rekstrarafkoma af vátryggingastarfsemi var 1.501 m.kr. fyrir skatta á árinu 2010. Afkoma eigna-, skipa- og ökutækjatrygginga batnaði verulega milli ára. Afkoma slysatrygginga var óbreytt milli ára. Afkoma ábyrgðartrygginga olli enn vonbrigðum þrátt fyrir verulegan bata á milli ára. Í heild lækkaði tjónshlutfall samstæðunnar úr 94% í 77% og samsett hlutfall er 95% sem er í takt við það sem tíðkast í rekstri tryggingafélaga í Evrópu. Tap af fjármálarekstri Afkoma af fjárfestingastarfsemi félagins nam 1.363 m.kr. árið 2010, samanborið við 3.359 m.kr. árið 2009. Þessi breyting skýrist að mestu af lægri vaxtatekjum, neikvæðri gengisþróun og minni gangvirðishækkunum hlutabréfa. Afkoma af fjármálarekstri félagsins á árinu 2010, að teknu tilliti til fjármagnsgjalda og virðisrýrnunar fjáreigna, var neikvæð um 695 m. kr. á árinu 2010. Lægri rekstrarkostnaður Rekstrarkostnaður TM á árinu 2010 var 2.145 m.kr. Frekari hagræðingaraðgerðir á árinu skiluðu sér í lækkun rekstrarkostnaðar í krónum talið, þriðja árið í röð. Kostnaðarhlutfall samstæðunnar lækkaði úr 20,4% árið 2009 í 18,6% árið 2010. Traust fjárhagsstaða Hagnaður TM af reglulegri starfsemi á árinu 2010 var 765 m.kr. samanborið við 237 m.kr. hagnað 2009. Fjárhagsleg staða TM er sem fyrr sterk, eigið fé í árslok 2010 nam 8.803 m.kr. og eiginfjárhlutfall var 30%. Eignir á móti vátryggingaskuld (bótasjóður) eru traustar þar sem stór hluti eignasafns félagsins er í ríkistryggðum verðbréfum og innstæðum. Geta félagsins til að standa við skuldbindingar sínar er langt umfram það sem opinberir aðilar gera kröfur um. Skýr stefna Stjórnendur og starfsmenn TM horfa björtum augum til framtíðar. Félagið hefur allt frá stofnun þess árið 1956 einbeitt sér að því að byggja upp traust í samskiptum við viðskiptavini sína og mun halda áfram á þeirri braut. Sóknarfæri á markaði eru mörg fyrir TM og munu verkefni ársins 2011 snúa að því að nýta þau til fullnustu. Nánari upplýsingar veitir Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 515 2609 |
|||
|