|
|||
![]() |
|||
2015-11-27 10:09:27 CET 2015-11-27 10:09:27 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki stækkar tvo flokka sértryggra skuldabréfaArion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq OMX Íslandi. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI 21 var stækkaður um 500.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,10% og verðtryggði flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 1.200.000.000 kr á ávöxtunarkröfunni 3,08%. Heildareftirspurn í útboðinu var 3.260.000.000 kr. Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið teknir til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi. Arion banki nýtir sértryggð skuldabréf til fjármögnunar á íbúðalánum til einstaklinga. Arion banki veitir nú verðtryggð íbúðalán á 3,80% föstum vöxtum til fimm ára og 3,65% breytilegum vöxtum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|