2015-11-27 12:55:49 CET

2015-11-27 12:55:49 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. lýkur víxlaútboði


Landsbankinn hf. lauk í dag lokuðu útboði á tveimur víxlaflokkum, þegar
útgefnum flokki, LBANK 160510 og nýjum flokki, LBANK 160610. 

Heildartilboð í útboðinu námu 2.140 m. kr. og var tilboðum tekið í flokki LBANK
160510 að fjárhæð 660 m. kr. á 6,50% flötum vöxtum sem jafngildir verðinu
97,2263 og í flokki LBANK 160610 að fjárhæð 500 m. kr. á 6,55% flötum vöxtum
sem jafngildir verðinu 96,6756. 

Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 4. desember 2015.

Nánari upplýsingar um víxlana má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/vixlar.