|
|||
2009-05-13 13:45:13 CEST 2009-05-13 13:46:14 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði ríkisvíxla - RIKV 09 0915Útboð á ríkisvíxlum í flokki RIKV 09 0915 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Seðlabanka Íslands kl. 11:00 í dag. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 09 0915: Alls bárust 55 gild tilboð í flokkinn RIKV 09 0915 að fjárhæð 53.396 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 20.000 m.kr. að nafnverði á meðalverðinu 98,078 (flatir vextir 5,74%). Hæsta verð tekinna tilboða var 98,170 (5,46%) og lægsta verð tekinna tilboða var 98,000 (5,97%). |
|||
|