|
|||
2014-05-07 19:55:33 CEST 2014-05-07 19:56:06 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Fyrsta skuldabréfaútgáfa í evrum að upphæð 100 milljónir evra+------------------------------------------------------------------------------+ |Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að upphæð 100 milljónir evra (15,6 | |milljarðar króna), sem er fyrsta erlenda útgáfa bankans í evrum. Skuldabréfið | |er til tveggja ára og ber 3% fasta vexti. Stefnt er að skráningu | |skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 16. maí 2014. | | | |Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans | |sem gefur Íslandsbanka færi á að gefa út skuldabréf í mismunandi myntum á | |föstum og fljótandi vöxtum. Fyrir útgáfuna hafði bankinn stækkað útgáfurammann| |í USD 275m úr USD 250m. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á | |vefsíðu fjárfestatengsla www.islandsbanki/fjárfestatengsl. | | | |Umsjónaraðili útboðsins var Deutsche Bank AG. | | | |Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka: | |"Skuldabréfaútgáfa í evrum markar tímamót fyrir okkur. Þessi útgáfa að upphæð | |100 milljónum evra kemur í kjölfar birtingar á lánshæfismati frá Standard & | |Poor's sem gaf Íslandsbanka BB+/B. Þá lauk Íslandsbanki skuldabréfaútgáfu í | |sænskum krónum í lok síðasta árs sem var svo stækkuð í mars síðastliðnum. | | | |Það er ánægjulegt að sjá að kjörin fara batnandi sem endurspeglar traust | |fjárfesta til Íslandsbanka og á því uppbyggingarstarfi sem hefur skilað okkur | |öflugum og ábyrgum banka. Kjarnastarfsemin er að skila stöðugum og jöfnum | |tekjum, endurskipulagningu er nánast lokið og eiginfjár- og lausafjárstaða | |bankans er góð. | | | |Nánari upplýsingar veita: | | * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma | | 440 3187. | | * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í | | síma 440 3925. | | | | | | | +------------------------------------------------------------------------------+ [HUG#1783571] |
|||
|