2010-10-12 18:54:23 CEST

2010-10-12 18:55:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

Endurskoðað lánshæfismat - Fær einkunnina B með jákvæðum horfum


Íslenska lánshæfismatsfyrirtækið Reitun ehf. hefur gefið út nýtt lánshæfismat
fyrir Kópavogsbæ. 

Í uppfærðu mati segir að þrátt fyrir að vera annað stærsta sveitarfélag
landsins og eitt það öflugasta í landinu, hafi aukning skulda í kjölfar
efnahagshrunsins þau áhrif að Kópavogsbær er með lánshæfiseinkunnina B með
jákvæðum horfum. Reitun telur það jákvætt takist Kópavogi að endurfjármagna
afborgunarþörf næstu ára. 

Kópavogsbær er eina sveitarfélagið sem gert hefur samkomulag við Reitun um mat
á lánshæfi. Þetta er í annað sinn sem Reitun gefur út skýrslu um lánshæfi
bæjarins. 

Sjá nánar meðfylgjandi skýrslu um lánshæfi Kópavogsbæjar.

reitun_kop_h1_2010.pdf