|
|||
2008-05-27 21:11:51 CEST 2008-05-27 21:12:51 CEST REGULATED INFORMATION Alfesca hf. - FyrirtækjafréttirUmtalsverð fjárfesting í AlfescaStjórn Alfesca er það sönn ánægja að tilkynna að undirrituð hefur verið viljayfirlýsing um að erlendur fjárfestir muni fjárfesta fyrir 48.3 milljónir evra í nýju hlutafé í félaginu. Þessi fjárfesting innsiglar þær nánu og uppbyggilegu viðræður sem hafa átt sér stað á milli Alfesca annars vegar og hins væntanlega hluthafa hins vegar um nokkra hríð. Vilji aðila stendur til að fjárfestingin verði með þeim hætti að keypt verða í áskrift 850,000,000 nýrra hluta sem hver er að nafnverði ein íslensk króna, og er áskriftarverðið á genginu 6,45 fyrir hvern hlut, sem felur í sér 6,9% afslátt miðað við gengi hluta í Alfesca við lok viðskipta föstudaginn 23. maí 2008. Um er að ræða, ef til kemur, 12,6% af heildarhlutafé Alfesca. Í kjölfar þess að nýlega voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um tekjuskatt, sem m.a. fela það í sér við ákveðnar aðstæður að felld er niður skattlagning söluhagnaðar hlutabréfa, þá mun fjárfestirinn hafa uppi áform um að stofna eignarhaldsfélag hér á landi sem mun halda utan um hlutafjáreignina í Alfesca. Alfesca býr vel að því að hafa sterkan efnahagsreikning og var eiginfjárhlutfall félagsins 47,4% 31. mars sl. Þegar við bætist nýtt fjármagn með þessu nýja hlutafé er ljóst að Alfesca er vel í stakk búið til að þróa félagið áfram og skoða tækifæri til að taka yfir önnur fyrirtæki, þrátt fyrir að aðstæður á markaði séu almennt erfiðar. Vonir standa til að gengið verði frá þessari fjárfestingu innan fárra vikna. Nánari upplýsingar verða gefnar síðar. Fyrirspurnum svarar: Antony Hovanessian , framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, sími +354 477 7000, ah@alfesca.com |
|||
|