2017-03-08 09:19:13 CET

2017-03-08 09:19:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Boðun hluthafafundar

REITIR: Endanleg dagskrá, tillögur og framboð til stjórnar á aðalfundi félagsins.


Aðalfundur Reita fasteignafélags hf. verður haldinn þann 14. mars 2017 kl.
15.00 á Hótel Reykjavík Natura, þingsal 3. 

Meðfylgjandi er endanleg dagskrá aðalfundarins og tillögur þær sem lagðar verða
fyrir fundinn en engar breytingar hafa orðið frá áður birtri dagskrá og
tillögum. 

Framboðsfrestur til stjórnar félagsins er nú runninn út samkvæmt samþykktum
félagsins og hafa eftirtaldir aðilar gefið kost á sér í stjórn félagsins: 

Elín Árnadóttir
Kristinn Albertsson
Martha Eiríksdóttir
Thomas Möller
Þórarinn V. Þórarinsson

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. laga um
hlutafélög nr. 2/1995. Þar sem stjórn félagsins skal skipuð fimm einstaklingum
er ljóst að framangreindir aðilar eru sjálfkjörnir í stjórn félagsins á
aðalfundinum án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Nýr í stjórn verður Kristinn
Albertsson en aðrir frambjóðendur eru fyrir í stjórn félagsins. 

Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna í viðhengi.