2014-12-17 18:29:26 CET

2014-12-17 18:30:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi hf: Útistandandi viðskiptakröfur HB Granda í Rússlandi


Í ljósi frétta af gengisþróun í Rússlandi á síðustu dögum er rétt að geta þess
að viðskiptakröfur HB Granda á rússneska viðskiptavini nema um 10 milljónum
evra. Stærstur hluti þessara krafna er nýlega kominn á gjalddaga eða er
ógjaldfallinn. HB Grandi hefur átt í löngu viðskiptasambandi við viðskiptavini
sína í Rússlandi og mun leita leiða í samstarfi við þá úr þeim vanda sem nú
steðjar að. Tekjur HB Granda námu 195 milljónum evra árið 2013.