|
|||
![]() |
|||
2014-12-17 19:19:27 CET 2014-12-17 19:19:42 CET REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Héraðsdómur úrskurðar um frávísunarkröfu TalsHéraðsdómur Reykjavíkur felldi fyrr í dag úrskurð um frávísunarkröfu í máli Vodafone (Fjarskipta hf.) gegn Tali (IP-Fjarskiptum ehf. Í tilkynningu Fjarskipta til Kauphallar, dags. 17. mars 2014, var upplýst að Vodafone (Fjarskipti hf.) hefði stefnt Tali (IP-Fjarskiptum ehf.) fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu reikningsskuldar, vegna fjarskiptaþjónustu sem Vodafone veitti Tali á grundvelli samninga á árunum 2011 og 2012. Krafa Vodafone nam rúmlega 117 milljónum króna og krafðist félagið þess að fá þá upphæð greidda auk vaxta. Undir rekstri málsins fór Tal fram á frávísun þess. Með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrr í dag er frávísunarkrafa Tals tekin til greina. Í ljósi þess að ekki er um efnislega niðurstöðu að ræða munu lögmenn Vodafone nú kynna sér þá formannmarka sem héraðsdómur telur vera á málatilbúnaðinum og meta hvort málinu verði skotið til Hæstaréttar. Allt að einu mun kröfunni verða haldið til streitu í því skyni að málið fái efnislega niðurstöðu, enda er afstaða Vodafone að fyrirliggjandi samningar milli félaganna feli í sér ótvíræða greiðsluskyldu af hálfu Tals. Rétt er að taka fram að óvissa ríkir áfram um efnislega niðurstöðu dómsmálsins. Verði Tal að endingu dæmt til greiðslu á framangreindri kröfu Vodafone mun það hafa jákvæð áhrif á fjárhag Vodafone. Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram. [HUG#1881373] |
|||
|