2008-08-28 12:59:25 CEST

2008-08-28 13:00:26 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
BYR - sparisjóður - Fyrirtækjafréttir

- Byr sparisjóður verður hf. - Stofnfjáreigendur samþykkja breytt rekstarform


Stofnfjáreigendur Byrs samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á
fjölmennum fundi á Hótel Nordica 27. ágúst 2008 að veita stjórn Byrs heimild
til að breyta rekstrarformi sparisjóðsins úr sjálfseignarstofnun
(stofnfjársjóði) í hlutafélag í samræmi við VIII. kafla laga nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki. 
Aðdragandi málsins er sá, að á aðalfundi Byrs sem fram fór þann 9. apríl sl.,
var samþykkt að kannaðar yrðu mögulegar breytingar á rekstrarformi Byrs í
hlutafélag. Stjórn Byrs setti í framhaldi af því á fót vinnuhóp, sem var falið
að taka út helstu kosti og galla þess, en hann skipuðu Gunnar Árnason,
starfsmaður Byrs, Sigurður Jónsson, lögg. endurskoðandi og Jón Kr. Sólnes, hrl.
og formaður hópsins. 
Í skýrslu vinnuhópsins til stjórnar Byrs, var komist að þeirri niðurstöðu að
fleiri rök mæli með hlutafjárvæðingu, en gegn. Er m.a. á það bent að auk þess
sem hlutafélög séu mun algengara rekstrarform um heim allan en það sem
sparisjóðir byggja á, lúti þau almennt gagnsæjum og auðskildum
stjórnvaldsreglum. Viðskipti með hlutafé séu m.a. af þessum sökum hagfelldari
en með stofnfé og almennt séð standi hlutafélögum fjármögnun á hagstæðari
kjörum til boða en sparisjóðum. 

Lögum samkvæmt breytist rekstrarform sparisjóðs með samruna hans og
hlutafélags, sem er stofnað í þeim tilgangi að yfirtaka rekstur sjóðsins.
Síðasti liður ferlisins felst svo í samþykki Fjármálaeftirlitsins á ákvörðun
stofnfjáreigenda um breytt rekstrarform og mun stjórn Byrs fara þess á leit við
FME á næstunni. 

Nánari upplýsingar veita Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri og Magnús Ægir
Magnússon, sparisjóðsstjóri í síma 575 4000.