2014-04-30 18:12:22 CEST

2014-04-30 18:12:51 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Islandsbanki hf. fær lánshæfismatið BB+/B með stöðugum horfum frá S&P


+------------------------------------------------------------------------------+
|Íslandsbanki er í traustri stöðu á íslenskum fjármálamarkaði með 30-40%       |
|markaðshlutdeild á flestum sviðum, þrátt fyrir að vera með minnsta            |
|efnahagsreikninginn af viðskiptabönkunum þremur. Þetta kemur fram í           |
|lánshæfismati fyrir Íslandsbanka sem Standard & Poor's birti í dag.           |
|                                                                              |
|Fyrirtækið gefur Íslandsbanka lánshæfiseinkunnina BB+ með stöðugum horfum sem |
|er góð niðurstaða þegar horft er til lánshæfismats íslenska ríkisins, en      |
|einkunnin er aðeins einu þrepi frá íslenska ríkinu.                           |
|                                                                              |
|Í lánshæfismati S&P kemur fram að fyrirtækið telji tekjudreifingu Íslandsbanka|
|góða þar sem tveir þriðju hluti tekna séu vaxtatekjur og að aðrar tekjur séu  |
|vel dreifðar á milli tekjusviða. Í matinu kemur enn fremur fram að yfirtökur á|
|árunum 2011 til 2012 hafi styrkt bæði stöðu bankans og afstöðu S&P til stefnu |
|og yfirstjórnar hans.                                                         |
|                                                                              |
|S&P segir Íslandsbanka vera vel í stakk búinn fyrir afléttingu gjaldeyrishafta|
|þar sem bankinn sé vel fjármagnaður og með sterka lausafjárstöðu. Þá er       |
|skuldsetningarhlutfall bankans einstaklega gott í alþjóðlegum samanburði.     |
|                                                                              |
|Í mati S&P kemur fram að bankinn hafi náð góðum árangri í endurskipulagningu  |
|lána og að markmið næstu ára séu áfram metnaðarfull. Í lok árs 2013 hafi      |
|hlutfall lána í endurskipulagningu (LPA) hjá bankanum verið 8,3% en meðaltal  |
|viðskiptabankanna þriggja var 12,5%.                                          |
|                                                                              |
|Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:                                 |
|                                                                              |
|"Við erum sátt við þessa niðurstöðu sérstaklega í ljósi þess að               |
|lánshæfiseinkunnin er aðeins einu þrepi frá einkunn íslenska ríkisins. Þess er|
|þó ekki að vænta að lánshæfismat íslenskra banka hækki frekar fyrr en að mat á|
|lánshæfi íslenska ríkisins batnar. Það er mikilvægt verkefni sem allir        |
|hagsmunaaðilar verða að vinna að í sameiningu.                                |
|                                                                              |
|Þessi niðurstaða S&P er viðurkenning á því að sú stefna undanfarinna ára hefur|
|skilað árangri.  Íslandsbanki er í dag vel fjármagnaður en lánshæfismatið mun |
|auðvelda aðgengi okkar að erlendum fjármálamörkuðum enn frekar og gera okkur  |
|betur í stakk búin til að styðja við viðskiptavini okkar sem stunda alþjóðleg |
|viðskipti og þarfnast fjármögnunar í erlendri mynt. Þannig uppfyllum við best |
|hlutverk bankans, að veita fjármagni til fjárfestinga og uppbyggingar í       |
|íslensku atvinnulífi."                                                        |
|                                                                              |
|                                                                              |
|Nánari upplýsingar veita:                                                     |
|                                                                              |
|  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma   |
|    440 3187.                                                                 |
|  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í  |
|    síma 440 3925.                                                            |
|                                                                              |
|                                                                              |
+------------------------------------------------------------------------------+

[HUG#1781823]