2016-03-17 10:26:17 CET

2016-03-17 10:26:17 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Arion banki lýkur víxlaútboði


Arion banki hf. lauk í gær, miðvikudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm
mánaða.  Í heild bárust tilboð upp á 3.520 milljónir kr. og var tilboðum tekið
fyrir 660 milljónir kr. 

Seldir voru víxlar til 5 mánaða að nafnverði 500 milljónir á 6,50% flötum
vöxtum. 

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 160 milljónir á 6,48% flötum
vöxtum. 

Öllum tilboðum í 12 mánaða víxla var hafnað að þessu sinni.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi í
næstu viku. 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.