|
|||
![]() |
|||
2016-03-17 14:31:36 CET 2016-03-17 14:31:36 CET REGULATED INFORMATION Byggðastofnun - ÁrsreikningurByggðastofnun - Ársreikningur 2015Ársreikningur Byggðastofnunar 2015 Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2015, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 17. mars 2016. Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall í lok júní skv. eiginfjárákvæðum laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki var 21,56% en var 20,2% í lok árs 2014. Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að efla byggð og atvinnulíf með sérstakri áherslu á jöfnun tækifæra allra landsmanna til atvinnu og búsetu. Í samræmi við hlutverk sitt undirbýr, skipuleggur og fjármagnar stofnunin verkefni og veitir lán með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra haghafa. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar 2015 -- Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna. -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki var 21,56% en skal að lágmarki vera 8% -- Hreinar vaxtatekjur voru 454,8 milljónir króna eða 54,3% af vaxtatekjum, samanborið við 399,4 milljónir króna (49,1% af vaxtatekjum) hreinar vaxtatekjur árið 2014. -- Laun og annar rekstrarkostnaður nam 392,6 milljónum króna samanborið við 387,1 milljónir árið 2014. -- Eignir námu 14.417 milljónum króna og hafa hækkað um 499,8 milljónir frá árslokum 2014. Þar af voru útlán og fullnustueignir 10.308 milljónir. -- Skuldir námu 11.666 milljónum króna og hækkuðu um 401 milljón á árinu. Um ársreikninginn Hagnaður ársins nam 98,9 milljónum króna. Skýrist hagnaður tímabilsins fyrst og fremst á lægri framlögum á afskriftarreikning útlána, matsbreytingu hlutabréfa og sölu fullnustueigna. Eiginfjárhlutfall Byggðastofnunar var 21,56% í lok tímabilsins. Horfur Eiginfjárstaða stofnunarinnar er áfarm sterk og gefur henni færi á að vera öflugur bakhjarl fyrirtækja á landsbyggðinni. Með bréfi Fjármálaeftirlitsins dagsettu 1. mars 2016 var Byggðastofnun tilkynnt að FME hefði ákveðið að samanlögð krafa um eiginfjárauka sem Byggðastofnun bæri að viðhalda frá og með 1. janúar 2016 væri 1% sveiflujöfnunarauki sem taki gildi 12 mánuðum eftir ákvörðun Fjármálaeftirlitsins. Að auki ber Byggðastofnun að viðhalda 1% verndunarauka frá 1. janúar 2016 samkvæmt 84. gr. e laga um fjármálafyrirtæki, sbr. 84. gr. a sömu laga. Verndunarauki samkvæmt nefndum lagaákvæðum hækkar í áföngum, fyrst í 1.75% hinn 1. júní 2016 og svo í 2.5% hinn 1. janúar 2017. Hinni samanlögðu kröfu skal jafnframt viðhaldið á samstæðugrunni. Miðað við hækkun verndunaraukans 1. júní 2016 og 1. janúar 2017 og gildistöku sveiflujöfnunaraukans 1. mars 2017 verður hin samanlagða krafa að öllu óbreyttu 3,5%. Eins og að ofan greinir er eiginfjárstaða Byggðastofnunar sterk og því mun hún geta uppfyllt þessa eiginfjárkröfu. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is Lykiltölur úr ársreikningi og samanburður við fyrri ár 2015 2014 2013 2012 2011 Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Þús. kr. Rekstrarreikningur Vaxtatekjur 837.787 813.793 998.367 1.239.328 1.325.644 Vaxtagjöld 382.996 414.371 561.002 645.570 685.712 Hreinar vaxtatekjur 454.791 399.422 437.365 593.757 639.933 ----------------------------------------------------------- Rekstrartekjur 385.120 448.940 559.846 193.296 319.051 Hreinar 839.911 848.362 997.211 787.054 958.983 rekstrartekjur ----------------------------------------------------------- Rekstrargjöld 741.021 499.145 808.294 939.827 1.194.695 Hagnaður (-tap) 98.891 349.217 188.917 -152.773 -235.712 ársins ----------------------------------------------------------- Með rekstrargjöldum eru færð framlög í afskriftareikning útlána og matsbr. hlutafjár Framlög í 61.012 -117.243 50.960 444.940 710.772 afskriftarreikning útlána o.fl. Efnahagsreikningur 31.12.2015 31.12.2014 31.12.2013 31.12.2012 31.12.2011 Eignir Sjóður og kröfur á 3.081.232 2.062.688 2.421.208 2.213.327 2.464.230 lánastofnanir Útlán 10.307.529 10.821.632 11.570.492 13.421.549 14.214.991 Veltuhlutabréf 372.768 388.993 809.599 763.001 881.276 Hlutir í 574.736 513.402 hlutdeildarfélögum Aðrar eignir 80.511 130.216 71.009 340.102 89.266 Eignir samtals 14.416.775 13.916.931 14.872.307 16.737.980 17.649.763 ----------------------------------------------------------- Skuldir og eigið fé Lántökur 11.495.402 11.161.775 12.458.421 14.549.688 17.137.891 Aðrar skuldir 170.826 103.500 111.448 74.769 245.578 Skuldir samtals 11.666.228 11.265.275 12.569.868 14.624.458 17.383.468 ----------------------------------------------------------- Eigið fé 2.750.547 2.651.656 2.302.439 2.113.522 266.295 Skuldir og eigið fé 14.416.775 13.916.931 14.872.307 16.737.980 17.649.763 samtals ----------------------------------------------------------- Veittar ábyrgðir 0 18.807 22.552 216.398 218.330 utan efnahagsreiknings Sjóðstreymi 2015 2014 2013 2012 2011 Handbært fé (-til) 207.394 556.712 787.953 638.877 555.887 frá rekstri Fjárfestingarhreyfin 373.684 569.609 324.400 617.252 375.980 gar Fjármögnunarhreyfing 437.466 -1.484.841 -904.473 -1.507.031 -343.495 ar Hækkun/(-lækkun) á 1.018.544 -358.520 207.880 -250.903 588.371 handbæru fé ----------------------------------------------------------- Handbært fé í 2.062.688 2.421.208 2.213.327 2.464.230 1.875.859 ársbyrjun Handbært fé í árslok 3.081.232 2.062.688 2.421.208 2.213.327 2.464.230 ----------------------------------------------------------- Eiginfjárhlutfall 21,56% 20,20% 16,12% 12,55% 1,34% samkvæmt lögum um lánastofnanir aðrar en viðskiptabanka og sparisjóði |
|||
|