2015-11-20 17:03:33 CET

2015-11-20 17:04:27 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 hf. - Niðurstöður hluthafafunda

N1 hf : Niðurstöður hluthafafundar 20. nóvember 2015


Niðurstöður hluthafafundar N1 hf. þann 20. nóvember 2015



Hluthafafundur  var haldinn hjá  N1 hf. þann  20. nóvember 2015 klukkan 15:30 að
Dalvegi  10-14 í Kópavogi. Á  fundinum var samþykkt  tillaga um lækkun hlutafjár
félagsins um 25,5%, eða um kr. 120.000.000 að nafnverði.

Annað var ekki samþykkt á fundinum.



Nánar um hlutafjárlækkunina

Hin  samþykkta tillaga felur annars vegar í  sér að hlutafé félagsins verði fært
niður  um  kr.  120.000.000 að  nafnverði  og  hins vegar að yfirverðsreikningur
hlutafjár  færist niður um kr. 1.423.851.256 en hluthafar hafa verið hvattir til
að kynna sér hugsanleg áhrif hvorrar færslu um sig á virði hlutafjár félagsins.

Samtals  verður  hlutafé  félagsins  því  lækkað  um  kr.  1.543.851.265 og  mun
fjárhæðin  verða greidd  út til  hluthafa félagsins  hlutfallslega í samræmi við
hlutafjáreign  þeirra í félaginu  í lok dags  þann 18. desember 2015, við fyrsta
mögulega  tímamark  þar  eftir  að  lögboðnar forsendur fyrir útgreiðslunni hafa
verið  uppfylltar. Félagið mun senda tilkynningu til Kauphallar þegar endanlegar
dagsetningar liggja fyrir.

Meðfylgjandi eru uppfærðar samþykktir félagsins.


[HUG#1968458]