|
|||
2014-04-25 16:45:40 CEST 2014-04-25 16:46:40 CEST REGULATED INFORMATION Mosfellsbær - FyrirtækjafréttirMosfellsbær stækkar skuldabréfaflokkMosfellsbær hefur stækkað skuldabréfaflokkinn MOS 13 1 um 100 milljónir að nafnverði. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði á ávöxtunarkröfunni 3,15%. Heildarstærð flokksins eftir stækkun er kr. 1.100.000.000 að nafnverði. Gert er ráð fyrir að nýju skuldabréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. þriðjudaginn 29. apríl nk. H.F. Verðbréf hf. hafði umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna og töku þeirra til viðskipta. Nánari upplýsingar veitir: Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar Sími: 525-6700 |
|||
|