2024-04-15 17:51:30 CEST

2024-04-15 17:51:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Festi hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Festi hf: Kaup Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. - Sáttaviðræður hefjast við Samkeppniseftirlitið


Samkeppniseftirlitið hefur fallist á beiðni Festi um að hefja sáttaviðræður um möguleg skilyrði vegna kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. Er ráðgert að þær hefjist þegar í þessari viku.

Í tilkynningu Festi, dags. 18. mars 2024, var greint frá frummati í rannsókn Samkeppniseftirlitsins á samkeppnislegum áhrifum kaupa Festi á öllu hlutafé Lyfju hf. en samkvæmt því krefst samruninn að öllu óbreyttu íhlutunar af hálfu Samkeppniseftirlitsins.

Í tilkynningu Festi, dags. 26. mars 2024, var greint frá því að félagið hefði sent sjónarmið og tillögur að skilyrðum til Samkeppniseftirlitsins vegna fummats stofnunarinnar og að óskað hafi verið eftir formlegum sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið um möguleg skilyrði vegna kaupanna. Hefur nú verið fallist á þá beiðni af hálfu Samkeppniseftirlitsins.

Nánar verður upplýst um framgang málsins um leið og tilefni er til.

Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi (asta@festi.is), og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi (mki@festi.is).