|
|||
![]() |
|||
2017-05-23 15:17:41 CEST 2017-05-23 15:17:41 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumLandsbankinn hf. : Lætur af störfum hjá LandsbankanumRagnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs Landsbankans, hefur sagt starfi sínu hjá bankanum lausu og mun láta af störfum á næstu vikum. Ragnhildur hefur verið framkvæmdastjóri hjá Landsbankanum frá árinu 2012 og hefur stýrt mörgum umfangsmiklum verkefnum fyrir bankann. "Það hefur verið ánægjulegt fyrir mig að taka þátt í þeim viðamiklu breytingum sem hafa orðið hjá bankanum undanfarin ár. Ég tel að nú sé réttur tími fyrir mig að leita nýrra tækifæra og takast á við nýjar áskoranir," segir Ragnhildur Geirsdóttir. "Ragnhildur hefur unnið gríðarlega gott starf fyrir bankann undanfarin ár. Fyrir hönd alls starfsfólks þakka ég Ragnhildi fyrir samstarfið og óska henni velfarnaðar í framtíðinni," segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans. [] |
|||
|