|
|||
2014-08-29 11:55:00 CEST 2014-08-29 11:55:00 CEST REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins LFEST1 vegna fyrri árshelmings 2014Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi hans 30. júní 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með morgundeginum á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning LFEST1 veitir Jón Finnbogason sjóðstjóri, í síma 444 7469. |
|||
|