2014-08-29 11:55:02 CEST

2014-08-29 11:55:03 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 - Ársreikningur

Árshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins REG 2 Smáralind vegna fyrri árshelmings 2014


Fagfjárfestasjóðurinn REG 2 Smáralind sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út
skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2013. 

  -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins
     samkvæmt rekstrarreikningi.
  -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014,
     efnahagi hans 30. júní 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrstu
     sex mánuðum ársins 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um
     reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
     Fjármálaeftirlitinu



Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með morgundeginum á
heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is 




Nánari upplýsingar um árshlutareikning REG 2 Smáralind veitir Jón Finnbogason
sjóðstjóri, í síma 444 7469.