|
|||
![]() |
|||
2016-03-17 09:01:11 CET 2016-03-17 09:01:11 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Reglubundin tilkynning um kaup Fjarskipta á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlunÍ viku 11 keyptu Fjarskipti hf. 797.700 eigin hluti að kaupverði 36.724.545 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.) -------------------------------------------------------------------- 14.3.2016 09:37 400.000 46,20 18.480.000 -------------------------------------------------------------------- 15.3.2016 12:41 6.000 46,90 275.400 -------------------------------------------------------------------- 15.3.2016 14:06 194.000 45,90 8.904.600 -------------------------------------------------------------------- 15.3.2016 14:39 197.700 45,85 9.064.545 -------------------------------------------------------------------- Samtals 797.700 36.724.545 Fjarskipti áttu 10.466.164 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 11.263.864 eigin hluti eða sem nemur 3,35% af útgefnum hlutum í félaginu. Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Fjarskipta sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 18. febrúar 2016. Fjarskipti hafa keypt samtals 2.168.700 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 99.998.795 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.188.184 hlutum eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 100.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 17. mars 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1995154] |
|||
|