|
|||
![]() |
|||
2016-03-17 09:05:49 CET 2016-03-17 09:05:49 CET REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Endurkaupaáætlun Fjarskipta hf. lokiðEndurkaupaáætlun Fjarskipta hf., sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 17. febrúar 2016, er lokið og hefur heimild félagsins til kaupa á eigin bréfum verið fullnýtt. Þar með hafa Fjarskipti keypt samtals 2.168.700 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 99.998.795 kr. Tilkynnt var um framkvæmd endurkaupaáætlunar Fjarskipta hf. með tilkynningu til Kauphallar Íslands hf. þann 17. febrúar 2016. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 2.188.184 hlutum eða sem nemur 0,65% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 100.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 17. mars 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni yrði lokið áður. Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitir "Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga." Nánari upplýsingar veitir: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, fjarfestatengsl@vodafone.is [HUG#1995156] |
|||
|