2022-06-23 17:21:34 CEST

2022-06-23 17:21:34 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Kvika banki hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Kvika banki hf.: Tilkynning um nýtingu áskriftarréttinda og hækkun hlutafjár


Stjórn Kviku banka hf. („Kvika“ eða „félagið“) hefur síðan á síðasta stjórnarfundi tekið fyrir fjórar tilkynningar eigenda áskriftarréttinda að hlutum í félaginu, að nafnvirði samtals 2.366.668 kr., um nýtingu réttindanna.

Framangreint felur í sér nýtingu á áskriftarréttindum að samtals 2.366.668 nýjum hlutum. Kaupverð hinna nýju hluta nemur kr. 18.004.677 og því er reiknað meðalgengi 7,6076060.

Með vísan til samninga um útgáfu áskriftarréttindanna er stjórn skylt að hækka hlutafé til að mæta skuldbindingum samkvæmt réttindunum og gefa út hlutafé, skrá rétthafa í hlutaskrá og tryggja skráningu þeirra sem rétthafa í verðbréfamiðstöð, sbr. lög nr. 7/2020 um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignaskráningu fjármálagerninga.

Stjórn nýtti í dag heimild sína samkvæmt bráðabirgðaákvæða IV í samþykktum félagsins til að hækka hlutafé þess í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra áskriftarréttinda. Hlutafé félagsins verður því hækkað um kr. 2.366.668 og mun eftir hækkun standa í kr. 4.831.955.307 að nafnvirði, með útgáfu nýrra hluta.

Heimild stjórnar til hlutafjárhækkunar á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV mun í kjölfarið vera samtals kr. 83.333.343  að nafnvirði.

Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til og skráð af Fyrirtækjaskrá Skattsins og nýir hlutir verða gefnir út af Nasdaq verðbréfamiðstöð og óskað verður eftir töku þeirra til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Tilkynning þessi er í samræmi við verklag sem félagið tilkynnti um þann 19. september 2019.