|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |

2017-11-02 16:35:27 CET 2017-11-02 16:36:27 CET REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - ÁrsreikningurSjóvá-Almennar tryggingar hf. - ÁrshlutauppgjörHagnaður 1.330 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins Tap 472 m.kr. á þriðja ársfjórðungi
Hermann Björnsson, forstjóri: „Vátryggingareksturinn heldur áfram að styrkjast frá fyrra ári hvort sem litið er til þriðja ársfjórðungs eða fyrstu níu mánaða ársins. Samsett hlutfall fjórðungsins nemur 94,6%. Neikvæð þróun verðbréfamarkaða á þriðja ársfjórðungi gerði það hins vegar að verkum að 472 m.kr. tap varð á rekstri. Undanfarin ár hefur það verið afkoma fjárfestinga sem hefur borið uppi jákvæða afkomu. Það er því ánægjulegt að vátryggingarekstur skili 884 m.kr. í afkomu fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins sem er tæplega tvöföldun frá sama tíma í fyrra og endar samsett hlutfall í 99,3% á tímabilinu. Í upphafi árs voru birtar horfur fyrir árið 2017 um að samsett hlutfall verði á bilinu 97-99% og að afkoma fyrir skatta verði umfram 2.500 m.kr. Ekki er talin ástæða til að breyta umræddum horfum en þó vert að benda á þær miklu sveiflur fjárfestingartekna sem orðið hafa á árinu.“ segir Hermann.
Helstu niðurstöður og lykiltölur
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi 2017, fimmtudaginn 2. nóvember kl. 16:15 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, fjárfestatengill, í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is. |