2012-10-19 16:05:21 CEST

2012-10-19 16:06:22 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Orkuveita Reykjavíkur - Fyrirtækjafréttir

Sala á Gagnaveitunni samþykkt í stjórn OR


Reykjavík, 2012-10-19 16:05 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag að hefja söluferli á allt að 49%
hlutar í Gagnaveitu Reykjavíkur. Tillaga þess efnis hafði þegar verið samþykkt
af sveitarstjórnum þeirra þriggja sveitarfélaga, sem eiga Orkuveituna. Ákveðið
var að velja ráðgjafa við söluna að undangenginni formlegri verðkönnun, þar sem
leitað verður tilboða meðal a.m.k. fimm fyrirtækja, sem hafa tilskilin leyfi
Fjármálaeftirlitsins skv. lögum nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Endanlegar
tillögur um tilhögun sölu verða lagðar fyrir stjórn og eigendur Orkuveitu
Reykjavíkur. 

Á fundum stjórnar OR og eigenda í mars og apríl 2011 var samþykkt 
Aðgerðaáætlun OR og eigenda - Planið. Í því er gert ráð fyrir sölu eigna að
fjárhæð 10 milljarða króna frá gildistöku þess til ársloka 2016. Um mitt ár
2012 höfðu eignir að fjárhæð 1.275 mkr. verið seldar. 

Gagnaveita Reykjavíkur, sem nú er að fullu í eigu Orkuveitunnar, býður heimilum
og fyrirtækjum aðgang að ljósleiðarakerfi til gagnaflutninga með þá sýn að
leiðarljósi að háhraða gagnaflutningur auki lífsgæði og samkeppnishæfni
íslensks samfélags. Þjónustusvæði Gagnaveitunnar nær frá Bifröst til
Vestmannaeyja og tengingar fyrirtækisins ná nú til um 50 þúsund heimila. Velta
Gagnaveitunnar árið 2011 nam um 1,2 milljörðum króna. 

Borgarstjórn Reykjavíkur, bæjarstjórn Akraneskaupstaðar og byggðaráð
Borgarbyggðar hafa samþykkt tillögu Eigendanefndar OR um söluna. Í henni segir
m.a. að áframhaldandi meirihlutaeign OR sé ætlað að stuðla að því markmiði að
tryggja hagstætt verð, opna samkeppni og meirihlutaeign almennings. Þá verður
það hluti söluferilsins að kanna þann kost að Gagnaveitan verði hluti opins
grunnnets í gagnaflutningum á suðvestur-horni landsins.