2016-08-30 18:35:18 CEST

2016-08-30 18:35:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Landfestar ehf. - Ársreikningur

Landfestar ehf.: Árshlutauppgjör fyrstu sex mánuði ársins 2016


  * Rekstrartekjur tímabilsins námu 1.036 m.kr. (2015: 1.087 m.kr.).
  * Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 818 m.kr.(2015: 911
    m.kr.).
  * Heildarhagnaður ársins nam 208 m.kr. (2015: 9.40 m.kr.).
  * Handbært fé frá rekstri nam 601 m.kr. (2015: 552 m.kr.).
  * Bókfært virði fjárfestingareigna nam 24.534 m.kr. (2015: 24.373 m.kr.).
  * Matsbreyting var neikvæð um 70 m.kr. (2015: jákvæð um 853 m.kr.).
  * Vaxtaberandi skuldir námu 14.938 m.kr. (2015: 14.785 m.kr.).
  * Eiginfjárhlutfall nam 34,3%. (2015: 34,8%).
  * Hagnaður á hlut var 0,13. (2015: 0,57).


Árshlutareikningur Landfesta ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016
var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 30. ágúst 2016.
Árshlutareikningurinn var kannaður af endurskoðanda félagsins.

Landfestar ehf. er eitt af níu dótturfélögum í samstæðu Eikar fasteignafélags
hf. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21, 21a og 26 og Álfheimar 74 (Nýi
Glæsibær). Hægt er að nálgast ársreikning félagsins á www.landfestar.is (sem er
jafnframt heimasíða móðurfélagsins).

Landfestar ehf. gaf út skuldabréfaflokkinn LF 14 1 í júní 2014. Í desember 2014
var skuldabréfaflokkurinn skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Staðfesting
endurskoðanda á útreikningum útgefanda LF 14 1 á skilmálum skuldabréfaflokksins
eru meðfylgjandi tilkynningu þessari. Samkvæmt staðfestingu endurskoðanda
stóðust allir skilmálar skuldabréfaflokksins LF 14 1 miðað við dagsetninguna
30.6.2016.

Fjárhagsdagatal 2016

Ársuppgjör Landfesta ehf. 2016 verður birt í viku 9, 2017.

Nánari upplýsingar veita:

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar fasteignafélags hf., í síma 590-2200
eða gardar@eik.is.

Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eikar fasteignafélags hf.,
í síma 590-2200 eða lydur@eik.is. 

[]