|
|||
![]() |
|||
2017-08-17 17:16:02 CEST 2017-08-17 17:16:02 CEST REGULATED INFORMATION Lýsing hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Lýsing hf: ÁrshlutareikningurAfkoma Lýsingar hf. fyrstu sex mánuði ársins 2017 Stjórn Lýsingar hf. samþykkti árshlutareikning fyrir rekstrartímabilið 1.1.-30.6.2017 þann 17. ágúst 2017. Helstu lykiltölur árshlutareikningsins eru: * Heildar tekjur voru 953 m.kr. og hækkuðu um 2,8% frá sama tímabili árið 2016. * Hreinar vaxtatekjur á tímabilinu voru 649 m.kr. sem er 1,9% lækkun frá sama tímabili árið 2016. * Rekstrarkostnaður var 522 m.kr. og hækkar um 1,3% frá sama tímabili árið 2016, en að teknu tilliti til einskiptisliðar á árinu 2016 er lækkun rekstrarkostnaðar um 10,5%. * Hrein virðisbreyting var jákvæð um 242 m.kr sem er 176 m.kr. aukning frá sama tímabili árið 2016. * Hagnaður tímabilsins var 1.480 m.kr. sem er 420% hækkun milli ára, en þar af var tekjuskattsinneign að fjárhæð 991 m.kr. tekjufærð á tímabilinu en áætlanir félagsins til næstu ára gera ráð fyrir að félagið geti nýtt inneignina á móti skattskyldum hagnaði. * Arðsemi eigin fjár var 24,0% á ársgrundvelli. * Heildareignir í lok tímabilsins voru 29.278 m.kr. * Eigið fé var 12.737 m.kr. * Reiknað eiginfjárhlutfall (CAD) er 46,3% Frekari upplýsingar um félagið má finna á https://www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/ [] |
|||
|