2009-04-14 11:30:30 CEST

2009-04-14 11:31:39 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Teymi hf. - Fyrirtækjafréttir

Kynningarfundur fyrir kröfuhafa 17. apríl 2009


Teymi hf. boðar til kynningarfundar fyrir kröfuhafa félagsins föstudaginn 17.
apríl 2009 kl. 12:00 á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 18, Reykjavík.
Kynnt verða drög að nauðasamningi fyrir félagið en fyrir liggur tillaga um
heimild stjórnar til að leita nauðasamninga sem tekin verður fyrir á
hluthafafundi mánudaginn 20. april 2009. Teymi er greiðandi að
skuldabréfaflokknum DB 06 1 og er jafnframt í ábyrgð fyrir skuldabréfaflokknum
OGVODA 05 1. Vakin er athygli á því að gangi framangreindar fyrirætlanir
félagsins eftir munu framangreindar kröfur teljast til samningskrafna samkvæmt
nauðasamningi.