2021-02-26 13:17:10 CET

2021-02-26 13:17:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Reykjavíkurborg - Útboð RVK 32 1 og RVKN 35 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið, í samræmi við útgáfuáætlun 2021, að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum RVK 32 1 og RVKN 35 1 miðvikudaginn 3. mars. Heimild til lántöku á árinu 2021 er 34.400 m.kr. Þetta er annað útboð ársins.

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 2.000 m.kr. að markaðsvirði í útboðinu.

RVK 32 1 ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 21. október 2032. Heildarstærð RVK 32 1 fyrir þetta útboð nemur alls 7.410 m.kr. að nafnvirði.

RVKN 35 1 ber fasta óverðtryggða vexti og greiðir jafnar afborganir á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 26. mars 2035. Heildarstærð RVKN 35 1 fyrir þetta útboð nemur alls 14.070 m.kr. að nafnvirði.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.

Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudagurinn 9. mars.

Reykjavíkurborg hefur boðið viðskiptavökum, sem eru Arion banki, Íslandsbanki, Kvika banki og Landsbanki, að hafa umsjón með útboðinu og taka á móti tilboðum í útboðinu. Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 3. mars.

Nánari upplýsingar veitir:

Helga Benediktsdóttir
Skrifstofustjóri fjárstýringar- og innheimtuskrifstofu Reykjavíkurborgar
Netfang: helga.benediktsdottir@reykjavik.is
Sími: 898-8272