|
|||
2008-10-02 11:42:51 CEST 2008-10-02 11:44:44 CEST REGULATED INFORMATION Kaupþing banki hf. - FyrirtækjafréttirMoody's tekur lánshæfiseinkunn sérvarinna skuldabréfa Kaupþings til endurskoðunar vegna hugsanlegrar lækkunarAlþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið lánshæfiseinkunn sérvarinna skuldabréfa Kaupþings til endurskoðunar vegna hugsanlegrar lækkunar, en bréfin hafa nú Aaa lánshæfiseinkunn. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar ákvörðunar Moody's að taka til endurskoðunar langtímaeinkunn Kaupþing (A1), skammtímaeinkunn bankans (P-1) og einkunn vegna fjárhagslegs styrkleika (C-), vegna hugsanlegrar lækkunar. Nánari upplýsingar veitir Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112. |
|||
|