2012-12-20 17:34:27 CET

2012-12-20 17:35:28 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Kauptilboð Regins hf. í fasteignina að Ofanleiti 2 samþykkt


SVÍV ses. hefur samþykkt kauptilboð Regins hf. í alla fasteignina að Ofanleiti
2. SVÍV ses. er sjálfseignastofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun.
Fasteignin sem er 7.781 m2 að stærð og hýsir í dag rekstur yfir 20 leigutaka
með fjölbreytta starfsemi. Áður var Háskólinn í Reykjavík með aðsetur í
eigninni. Réttindi leigutaka haldast óbreytt við kaup Regins á eigninni.
Tilboðið var gert með fyrirvara m.a. um niðurstöðu á greiningu leigusamninga.
Áætlað er að kaupsamningur verði undirritaður í janúar 2013. 

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í
sér að auka hlut í skrifstofuhúsnæði . Kaupverðið er trúnaðarmál en áhrif
kaupanna ef að verða eru áætluð yfir 4% aukning á EBITDA Regins hf. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 5128900 / 8996262