|
|||
2014-09-09 18:00:28 CEST 2014-09-09 18:01:29 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn gefur út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa, LBANK CB 19Landsbankinn lauk í dag sölu á nýjum flokki sértryggðra skuldabréfa. Skuldabréfin eru óverðtryggð með föstum 6,8% vöxtum til fimm ára. Fjárhæð útgáfunnar nemur 960 milljónum króna en þar af voru 900 milljónir króna seldar til fjárfesta á markaði. Mismunurinn verður nýttur vegna viðskiptavaktar með bréfin. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq OMX Iceland þann 17. september 2014. Samið hefur verið við Straum fjárfestingabanka um viðskiptavakt með bréfin. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. Nánari upplýsingar veita: Kolbrún Guðlaugsdóttir, fjárfestatengill, ir@landsbankinn.is og í síma 410 4014 Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 4011 |
|||
|