|
|||
2015-10-09 11:19:58 CEST 2015-10-09 11:20:59 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki lýkur útboði á sértryggðum skuldabréfumArion banki hf. lauk í gær útboði á óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa ARION CB 22. Flokkurinn er skráður á Nasdaq OMX Íslandi. Í heild bárust tilboð í ARION CB 22 uppá 3.500.000.000 kr. og var tilboðum tekið fyrir 3.340.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 6,50%. Að auki voru gefin út skuldabréf að upphæð 960 milljónir vegna verðbréfalána til viðskiptavaka. Eftir útboðið er heildarstærð flokksins 8.600.000.000 kr. Samhliða útboðinu keypti Arion banki til baka bréf í verðtryggðu flokkunum ARION CBI 19 fyrir 120.000.000 kr að nafnvirði og ARION CBI 34 fyrir samtals 240.000.000 kr. að nafnvirði. Var það gert í þeim tilgangi að uppfylla samninga um viðskiptavakt sem nýlega voru undirritaðir við Landsbankann hf., MP Straum og Íslandsbanka hf. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|