2011-05-27 18:18:18 CEST

2011-05-27 18:19:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Eyrir Invest ehf. - Fyrirtækjafréttir

Eyrir Invest selur öll hlutabréf sín í Össuri


Eyrir Invest hefur selt alla eignarhluti sína í Össuri hf. á genginu ISK 193
sem jafngildir DKK 8,75 á hlut.  Fyrir viðskiptin átti Eyrir 46,5 milljónir
hluta í Össuri eða sem jafngildir 10,2% af heildarhlutafé en á eftir viðskiptin
engan hlut í félaginu. Tilgangur sölunnar er að styrkja fjárhag Eyris enn
frekar og losa um fjármuni til að beina í ný verkefni þar sem Eyrir verður
leiðandi fjárfestir. 

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Eyrir Invest:

„Eyrir hefur verið hluthafi í Össuri frá 2004 og stutt dyggilega við vöxt
félagsins á undanförnum árum, en lengst af hefur Eyrir átt 20-25% hlut Össuri. 
Fjárfestingin í Össuri hefur verið farsæl, velta Össurar á síðustu 7 árum hefur
þrefaldast og arðsemi farið vaxandi.  Össur er nú markaðs- og tæknileiðtogi á
sínu sviði á heimsvísu.  Stjórnendur og starfsfólk Össurar eiga mikið lof
skilið fyrir þann árangur sem þegar hefur náðst og teljum við framtíð félagsins
bjarta. 

Fjárhagslegur styrkleiki Eyris er mikill og erum við að kanna nýja og spennandi
fjárfestingarkosti hér á landi þar sem við verðum leiðandi fjárfestar auk þess
sem rekstrarfélög okkar eru að auka umsvif sín á heimsvísu með innri og ytri
vexti.“ 

Efnahagur Eyris Invest er traustur.  Í árslok 2010 var bókfært eigið fé Eyris
187 milljónir evra eða um 31 milljarður ISK og eiginfjárhlutfall 44%, að auki
er verulegur óinnleystur hagnaður af skráðum hlutabréfum í eigu Eyris og því er
nettó virði eigna hærra en bókfært eigið fé.  Eyrir Invest er
langtímafjárfestir sem styður alþjóðleg iðnfyriræki og sprota til vaxtar. 
Lykileignir Eyris eru í iðnfyrirtækjunum  Marel, Fokker-flugiðnaði og
Stork-orkuiðnaði auk ýmissa sprotafjárfestinga.