|
|||
2011-11-11 12:45:44 CET 2011-11-11 12:46:48 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0215 og RIKV 12 0515Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0215 og RIKV 12 0515 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0215: Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 19.550 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 18.600 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,125 (flatir vextir 3,45%). RIKV 12 0515: Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.350 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.100 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,511 (flatir vextir 2,99%). |
|||
|