|
|||
![]() |
|||
2017-12-13 17:30:24 CET 2017-12-13 17:31:25 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarRíkissjóður gefur út nýtt skuldabréf í evrumRíkissjóður Íslands hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, eða að jafnvirði um 61,5 milljörðum króna. Skuldabréfin bera 0,5% fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 0,56%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 3,9 milljörðum evra eða ríflega áttfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón var í höndum Citi, Barclays, Deutsche Bank og Nomura. Samhliða nýju útgáfunni gerði ríkissjóður tilboð í eldri skuldabréfaútgáfu frá árinu 2014 sem nam 750 milljónum evra. Eigendur bréfa að nafnvirði 397,6 milljónir evra eða um 49 ma.kr. tóku tilboði ríkissjóðs og fengu þeir sem vildu forgang í nýju útgáfunni. Heildarskuldsetning ríkissjóðs eykst um 12,5 ma.kr. við aðgerðina. |
|||
|