2015-09-25 12:09:31 CEST

2015-09-25 12:10:23 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: Islandsbanki hf. : Flokkur sértryggðra skuldabréfa stækkaður - Frétt birt 2015-09-24 16:57


Leiðrétting: Röng upphæð var í tilkynningu sem send var út í gær um seld
skuldabréf í útboði Íslandsbanka. Hefur upphæðin verið leiðrétt úr 2,22 ma. kr.
í 2,32 ma. kr. í eftirfarandi tilkynningu:


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á einum flokki óverðtryggðra
sértryggðra skuldabréfa. Flokkurinn ISLA CB 19 var boðinn út og seldust þar
2,32 ma. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,90%. Að þessu sinni var öllum tilboðum tekið
og heildarstærð ISLA CB 19 verður nú 4,08 ma. kr.

Alls hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð 44,79 ma. kr.
frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Stefnt er að töku
bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 30. september næstkomandi.
Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum
MP Straums.

Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma
    440 4752/ 844 4752.
  * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma
    440 4005.


[HUG#1954563]