|
|||
2010-02-02 16:59:00 CET 2010-02-02 17:06:10 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisbréfa RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612Föstudaginn 5. febrúar kl. 14:00 fer fram útboð í tveimur flokkum ríkisbréfa með tilboðsfyrirkomulagi hjá Lánamálum ríkisins. Í þessu útboði verða seld bréf í RIKB 11 0722 og RIKB 25 0612. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 10. febrúar 2010. Í þessu útboði óskar Lánamál ríkisins eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokka ríkisverðbréfa: Flokkur Lokagjalddagi Útistandandi fjárhæð* Lánstími RIKB 11 0722 22.07.2011 8.922 m.kr. 1,5 ár RIKB 25 0612 12.6.2025 65.525 m.kr. 15,4 ár *að nafnverði Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9. febrúar Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 10. febrúar 2010. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9633. |
|||
|