|
|||
2011-03-17 10:00:00 CET 2011-03-17 10:00:02 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2010Góð afkoma á rekstri Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. Afkoma 2010 Tekjuafgangur 2010 var 1.248 m.kr. á móti 1.656 m.kr. árið áður. Lækkun vaxta á innlendum markaði sem og minnkandi verðbólga skýra minnkandi afkomu á milli ára, gengishagnaður vegna erlendra skulda bæta afkomuna um 321 milljón. Meginhlutverk sjóðsins er að tryggja sveitarfélögum, stofnunum þeirra og fyrirtækjum lánsfé á hagstæðum kjörum. Útborguð langtímalán á árinu 2010 voru 6.378 m.kr. samanborið við 8.421 m.kr. á fyrra ári. Sjóðurinn hefur ekki tapað útláni frá því að hann hóf starfsemi árið 1967 og engin vanskil voru í árslok 2010. Sveitarfélögin bera ekki ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins, en tryggingar fyrir útlánum hans eru í tekjum sveitarfélaga skv. 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, sbr. einnig reglugerð um tryggingar Lánasjóðs sveitarfélaga í tekjum sveitarfélags nr. 123/2006. Sjóðurinn beitti veði sínu einu sinni á árinu og í kjölfarið gerði viðkomandi lántaki upp vanskil sín við sjóðinn. Eigið fé í árslok 2010 var 14.178 m.kr. á móti 12.930 m.kr. árið áður. Vegið eiginfjárhlutfall, svonefnt CAD-hlutfall, var í árslok 2010 78% en var 67% í árslok 2009, en þarf að vera 8% skv. lögum um fjármálafyrirtæki. Lánasjóðurinn verður með fjárfestakynningu á skrifstofu sjóðsins Borgartúni 30, 5. hæð, þriðjudaginn 22. mars 2011 kl. 8:30. Nánari upplýsingar veitir: Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949. |
|||
|