2017-11-24 17:31:59 CET

2017-11-24 17:32:32 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Eik fasteignafélag hf.: Framlenging á leigusamningi við Landsbankann


Vísað er til kafla 1.3 "Rekstraráhætta" í Útgefandalýsingu Eikar
fasteignafélags, dagsetta 8. apríl 2015, þar sem tilgreint er sérstaklega um
áhættu tengda endurnýjun á leigusamningum við Símann og Mílu, Vátryggingarfélag
Íslands og Landsbankann hf. á árunum 2015 - 2018.

Eik fasteignafélag og Landsbankinn hf. hafa nú endursamið um leigu á því húsnæði
sem Landsbankinn hf. hefur haft til leigu hjá félaginu. Samningurinn nær yfir
áætlaðan byggingartíma nýrra höfuðstöðva Landsbankans. Nýr samningur tekur gildi
1. mars 2018.

Nú hefur verið framlengt í öllum þeim samningum sem fjallað var sérstaklega um í
kafla 1.3. "Rekstraráhætta" í Útgefandalýsingu félagsins.

Nánari upplýsingar veitir:

Eyjólfur Gunnarsson, framkvæmdastjóri útleigusviðs, eyjolfur@eik.is, s.
590-2200 / 787 1159


[]