|
|||
2015-02-24 14:43:47 CET 2015-02-24 14:44:47 CET REGULATED INFORMATION Garðabær - FyrirtækjafréttirGarðabær – stækkun skuldabréfaflokksGarðabær, í samstarfi við Markaði Íslandsbanka, mun þann 27. febrúar næstkomandi bjóða til sölu skuldabréfið GARD 13 1 sem er stækkanlegur skuldabréfaflokkur sveitarfélagsins. Sala hinna nýju skuldabréfa fer fram í samræmi við ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar 19. febrúar og verður salan með útboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu skuldabréf allt að 400 milljónir króna að nafnvirði. Áhugasömum fjárfestum er bent á að hafa samband við Verðbréfamiðlun Íslandsbanka. Tekið verður við tilboðum til klukkan 14:00 föstudaginn 27. febrúar n.k. Garðabær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum að hluta til eða í heild. Gert er ráð fyrir skuldabréfin verði tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland þann 12. mars n.k. Allar nánari upplýsingar varðandi skuldabréfin og skuldabréfaútboðið eru veittar af Verðbréfamiðlun Íslandsbanka. |
|||
|