|
|||
![]() |
|||
2012-12-18 17:07:24 CET 2012-12-18 17:08:25 CET REGULATED INFORMATION Hagar hf. - FyrirtækjafréttirHögum hf. hefur borist stefna frá Kaupás ehf.Högum hefur í dag borist stefna frá Kaupás ehf. þar sem félagið höfðar mál á hendur Högum hf. til heimtu skaðabóta. Aðalkrafa er að upphæð 233.351.961 krónum auk vaxta frá janúar 2009. Varakröfur nema lægri upphæðum. Í Skráningarlýsingu félagsins þann 26. nóvember 2011 var fjallað um framangreint mál og hugsanlega málshöfðun. Málið á rætur að rekja til hugsanlegs tjóns sem Kaupás heldur fram að Krónan hafi orðið fyrir í svokölluðu mjólkurverðstríði á árunum 2005-2006. Afstaða Haga er skýr. Félagið telur að Kaupás ehf. hafi ekki orðið fyrir skaða, enda hafði Kaupás frumkvæði að umræddu verðstríði og undirverðlagningu. Hagar munu taka til varna í málinu. Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500. |
|||
|