2009-01-29 16:05:12 CET

2009-01-29 16:06:12 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir

- Sparisjóður Mýrasýslu nær samningi um kyrrstöðutímabil (standstill) við alla helstu lánardrottna félagsins.


Sparisjóður Mýrasýslu hefur um nokkurn tíma unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu sjóðsins eftir að ljóst varð að ekki yrði af samningi við
Kaupþing banka hf. í kjölfar hruns íslensku viðskiptabankanna. 
Í nóvember 2008 undirrituðu Nýi Kaupþing banki hf. og Borgarbyggð samkomulag um
kaup bankans á öllu stofnfé Sparisjóðs Mýrasýslu. Kaupin eru háð því að
samningar náist við lánardrottna um fjárhagslega endurskipulagningu sjóðsins
auk þess sem fyrirvari er gerður um samþykki Fjármálaeftirlits og
Samkeppniseftirlits. 

Þann 27. janúar sl. undirritaði sparisjóðurinn samkomulag við alla helstu
lánardrottna sína, innlenda sem erlenda, þess efnis að lánadrottnar skuldbinda
sig til að gjaldfella ekki lán sparisjóðsins innan tilskilins frests sem er til
2. mars næstkomandi. Sá frestur verður nýttur til að semja við lánardrottna
sparisjóðsins um aðkomu þeirra að fjárhagslegri endurskipulagning sjóðsins. 

Höfuðstóll lána verður ekki greiddur á tímabilinu og heldur ekki vextir af
víkjandi lánum, þ. á m. skuldabréfaflokki 05/01 að heildarfjárhæð krónur
279.349.000 á lokagjalddaga 2015 sem tekinn hefur verið til viðskipta á  NASDAQ
OMX Iceland hf Sparisjóðurinn mun hins vegar greiða vexti af öllum öðrum lánum,
eftir því sem við á, á kyrrstöðutímabilinu og samkomulagið hefur ekki áhrif á
stöðu sparifjáreigenda eða þeirra sem eiga almennar viðskiptakröfur á
sparisjóðinn. 

Eigendur skuldabréfa sem tekin hafa verið til viðskipta í kauphöll eru ekki
aðilar að þessu samkomulaginu en stefnt er að þátttöku þeirra í fjárhagslegri
endurskipulagningu. 

Sparisjóður Mýrasýslu hefur eins og komið hefur fram átt í viðræðum við
lánadrottna um nokkurn tíma vegna stöðu sjóðsins og eru sparisjóðsstjóri og
stjórn sparisjóðsins eru bjartsýnir á að samningar muni nást um fjárhagslega
endurskipulagningu. Undiritun samkomulags við lánadrottna er jákvætt skref í
átt að því að tryggja framtíðarrekstur sparisjóðsins og að tryggja hagsmuni
viðskiptavina og annara hagsmunaaðila. 

Frekari upplýsingar veitir:

Bernhard Þór Bernhardsson
Sparisjóðsstjóri
Sími: 4307500
Netfang: bernhard@spm.is