2015-11-26 17:02:40 CET

2015-11-26 17:02:40 CET


SÄÄNNELTY TIETO

Islanti
Eik fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf.: Árshlutauppgjör fyrstu níu mánuði 2015


-          Rekstrartekjur tímabilsins námu 4.368 m.kr.
-          Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 3.067 m.kr.
-      Heildarhagnaður tímabilsins nam 3.062 m.kr.
-      Handbært fé frá rekstri nam 1.732 m.kr. á tímabilinu.
-      Bókfært virði fjárfestingareigna nam 65.630 m.kr. í lok tímabilsins.
-      Matsbreyting  fjárfestingareigna nam 3.122 m.kr. á tímabilinu.
-      Vaxtaberandi skuldir námu 41.526 m.kr. í lok tímabilsins.
-      Eiginfjárhlutfall nam 32,5%.
-      Hagnaður á hlut var 0,89 kr.

Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30.
september 2015 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 26. nóvember
2015.

Rekstur félagsins
Mikil eftirspurn hefur verið eftir atvinnuhúsnæði Eikar á síðustu mánuðum og
hefur virðisútleigu-hlutfall félagsins hækkað í 93,9% miðað við undirritaða
leigusamninga í dag (95,1% að teknu tilliti til eigna í þróun). Rekstur
félagsins hefur auk þess gengið mjög vel á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 og er
uppgjörið í takt við áætlanir stjórnenda félagsins. Helstu rekstrarkennitölur
líta einnig vel út.

Rekstrartekjur félagsins á fyrstu níu mánuðum ársins 2015 námu 4.368 m.kr., þar
af voru leigutekjur 4.121 m.kr. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og
afskriftir nam 3.067 m.kr. Einskiptiskostnaður vegna skráningar hlutafjár
félagsins á markað nam 88 m.kr. á tímabilinu. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam
3.831 m.kr. og hagnaður tímabilsins nam 3.062 m.kr.

NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, afskriftir og
einskiptisliði sem hlutfall af leigutekjum) nam 76,6% á fyrstu níu mánuðum
ársins 2015 og 78,2% á þriðja ársfjórðungi 2015, samanborið við 77,5% árið
2014. Arðsemi fjárfestingareigna (yield, þ.e. rekstrarhagnaður fyrir
matsbreytingu, afskriftir og einskiptisliði sem hlutfall af meðalvirði
fjárfestingareigna tímabilsins) nam 6,6% á fyrstu níu mánuðum 2015 og 6,8% á
þriðja ársfjórðungi 2015.

Fjárfestingareignir félagsins eru metnar á gangvirði í samræmi við alþjóðlega
reikningsskilastaðla (IFRS) og stuðst er m.a. við núvirt framtíðarsjóðstreymi
einstakra eigna. Breytingar á gangvirði eru færðar undir matsbreytingu
fjárfestingareigna sem nam á tímabilinu 3.122 m.kr.

Á árinu 2014 nánast þrefaldaðist félagið að stærð með kaupum á EF1 hf. og
Landfestum ehf. Rekstur keyptra eigna kom að fullu inn í rekstur samstæðunnar á
þriðja ársfjórðungi 2014 og er því samanburður við fyrstu 9 mánuði frá árinu
áður nokkuð ómarktækur.

Efnahagur félagsins
Heildareignir félagsins námu 67.695 m.kr. þann 30. september 2015, þar af námu
fjárfestingareignir 65.630 m.kr. Eigið fé félagsins nam 21.971 m.kr. í lok
september 2015 og var eiginfjárhlutfall 32,5%. Heildarskuldir félagsins námu
45.723 m.kr. þann 30. september 2015, þar af voru vaxtaberandi skuldir 41.526
m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 3.325 m.kr.

Ef tekið er tillit til allra undirritaðra samninga sem skrifaðir hafa verið
undir í dag, og tekið er tillit til seldra eigna undanfarinna vikna, er
virðisútleiguhlutfall félagsins 93,9% í dag (95,1% að teknu tilliti til eigna í
þróun). Í lok september 2015 var virðisútleiguhlutfall félagsins 92,1% og hafði
hækkað um 0,3% frá lok júní 2015. Ef tekið er tillit til eigna í þróun þá var
virðisútleiguhlutfallið 93,2% í lok september 2015.

Kauptilboð í Hótel 1919
Í október 2015 var undirritað kauptilboð um kaup Eikar á útgefnu hlutafé
Heimshótela ehf. en Heimshótel á Hótel 1919 við Pósthússtræti 2 í miðborg
Reykjavíkur. Um er að ræða um 6 þús.fm. en hótelið liggur að Pósthússtræti 2,
Tryggvagötu 28 og Hafnarstræti 9-11. Kaupsamningurinn hefur ekki verið kláraður
og ekki liggur fyrir hvert endanlegt kaupandlag verður í kaupsamningnum, þ.e.
hvort að eingöngu ofangreindar fasteignir verða keyptar, eða hvort rekstrarfélag
hótelsins fylgi einnig með. Hótel 1919 er með rekstrarsamning við alþjóðlegu
hótelkeðjuna SAS Hotel A/S (dótturfélag Rezidor Hotel Group) um rekstur
hótelsins undir nafni Radisson Blu. Ef af fyrirhuguðum kaupunum verður er áætlað
að NOI (Net Operating Income eða Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og
afskriftir) félagsins hækki um 6-7% á ársgrundvelli, miðað við útgefna
rekstrarspá fyrir árið 2015. Þar sem langt er liðið á árið 2015 og kaupsamningur
ókláraður munu kaupin ekki hafa mikil áhrif á rekstur félagins á árinu 2015.
Eignasafn félagsins stækkar um 5-6% við fyrirhuguð kaup sem verða fjármögnuð með
lántöku og handbæru fé félagsins.

Nýr skuldabréfaflokkur EIK 15 1
Í október 2015 lauk sölu á nýjum skuldabréfaflokki Eikar fasteignafélags, EIK
15 1. Skuldabréfaflokkurinn er 3,3 ma.kr. að stærð, ber 3,3% fasta verðtryggða
vexti og er til 30 ára. Á bakvið skuldabréfaflokkinn eru að veði Borgartún 21 og
Borgartún 21a. Skuldabréfaflokkurinn var skráður á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hf.
í nóvember 2015.

Eignasafn félagsins
Eik fasteignafélag hf. sinnir rekstri og útleigu á atvinnuhúsnæði. Fjöldi eigna
félagsins er yfir 100 og telja þær samtals yfir 273 þúsund fermetra í lok
september 2015. Virði fjárfestingareigna félagsins er um 66 ma.kr. og
heildarfjöldi leigutaka er yfir 400. Helstu eignir félagsins eru Borgartún 21 og
26, Nýi Glæsibær, Turninn í Kópavogi, Smáratorg og Austurstræti 5,6,7 og 17.
Stærstu leigutakar eru Fasteignir ríkissjóðs, Húsasmiðjan, Landsbankinn,
Rúmfatalagerinn, Skipti, Deloitte og VÍS.

Stærsti hluti fasteignasafns Eikar eru skrifstofuhúsnæði eða 48%. Næst koma
verslunarhúsnæði 31%, lagerhúsnæði 9%, veitingahúsnæði 4% og hótel 3%. Um 88%
fasteigna félagsins eru á höfuðborgarsvæðinu, þar af 39% á fjármála- og
viðskiptasvæði Reykjavíkur (aðallega innan póstnúmera 105 og 108) og 13% í miðbæ
Reykjavíkur. Alls er 12% eignasafnsins á landsbyggðinni, þar af 10% á Akureyri.

Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur verður haldinn mánudaginn 30. nóvember 2015 klukkan 08:30
á 20. hæð í Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi. Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar, mun kynna uppgjörið og fara yfir sýn stjórnenda og breytingar á
fasteignamarkaðinum.  Í kjölfarið mun hann ásamt Kolbeini Friðrikssyni,
framkvæmdastjóra fjármálasviðs, svara spurningum.

Nánari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri, gardar@eik.is, s. 590-2200 / 861-3027


[HUG#1969684]