2009-03-27 17:42:46 CET

2009-03-27 17:44:09 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Gengið frá sölu á Kaupthing Bank Sverige til Ålandsbanken



Vísað er til fréttatilkynningar frá Kaupþingi banka frá 16. febrúar
2009, varðandi sölu á Kaupthing Bank Sverige AB. Salan hefur nú
gengið í gegn (seljandi er Kaupthing Sverige AB, sem er móðurfélag
Kaupthing Bank Sverige AB og dótturfélag Kaupþings banka hf.;
kaupandi er Ålandsbanken Abp), og eru viðskiptin því hvorki háð
neinum skilmálum í tengslum við lokun þeirra lengur né samþykki
eftirlitsaðila.