|
|||
2013-08-13 13:45:00 CEST 2013-08-13 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 1115 OG RIKV 14 0217Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 1115 og RIKV 14 0217 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 13 1115: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.288 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 7.088 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,103 (flatir vextir 3,54%). RIKV 14 0217: Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.060 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.160 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,124 (flatir vextir 3,70%). |
|||
|